Betri Heimur – Sjálfbærni
Verkefnið er 27 námseiningar í sex hlutum sem hægt er að taka fyrir í einu samfelldu þema eða að brjóta niður í fjögur samfelld þemu – fjölmargar námseiningar er hægt að taka fyrir einar og sér. Fyrsti hlutinn er kveikja og forþekkingarvinna en svo tekur við annar hluti „Heimurinn batnandi fer” þar sem fjallað er um fólk á flótta. Nemendur kynna sér fólk á flótta og koma síðan með tillögur um hvernig gott er að taka á móti fólki sem flýr til Íslands og setja sig í spor þeirra. Nemendur kynna sér hvernig BARNASÁTTMÁLI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA ætti að nýtast börnum og kynna svo verkefnin sín í lokin – annaðhvort fyrir öðrum nemendum skólans, foreldrum eða skólastjórnenedum. „Betra umhverfi” er þá þriðji hlutinn, þar fjalla nemedur um sjálfbærni og velta fyrir sér hvort að þeir sjálfir mengi eða ekki. Í þessum hluta safna nemendur plasti heimanfrá sér í heila viku og vinna endurvinnslu listaverk. Í þessari lotu er líka STEAM hönnunaráskorun. Í fjórða hlutanum „Betri heimur fyrir dýrin okkar” vinna nemendur hýbýlakassa fyrir dýrin sín í smíðum og læra um útrýmingarhættu. Í fimmta hlutanum „Betra andrúmsloft fyrir alla” búa nemendur til koltvísýring og velta fyrir sér mengum og leiðum til að draga úr mengun. Sjötti og síðasti hlutinn eru tvö STEAM verkefni sem hægt er að grípa í eða vinna síðast.
Áætluð lengd: heildartímafjöldi getur verið til dæmis 2×2 kennslustundir á viku í 6 vikur eða 24 tímar. Það er líka auðvelt að fara á dýptina með verkefni og nota þannig meiri tíma í hvert þeirra og jafnvel hafa verkefnið sem fasta tíma í töflu nemenda í eina önn eða heilt skólaár. Sumar námseiningar eru þannig að þær má vinna með í nokkrar kennslustundir. Mikilvægt er að kennarar lesið verkefnið vel í gegn og geri þær breytingar sem henta. Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að námslotan sé samfelld er auðvelt að taka einstök verkefni út og vinna með.
Námsgreinar: íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði, upplýsinga- og tæknimennt. STEM er bæði samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með neðst.
Yngsta stig: þetta þemaverkefni er skrifað fyrir yngsta stig. Verkefnið má þó auðveldlega vinna með eldri nemendum, með því að uppfæra hæfniviðmiðin og aðlaga viðfangsefnin. Megináhersla þessa verkefnis er þjálfun í frumkvöðla- og nýsköpunarhugsun.
Handbók kennara er aðgengileg hér sem Google Doc skjal. Hægt er að taka afrit og aðlaga skjalið. Allar góðar humyndir og ábendingar um hvað betur má fara eru vel þegnar sem komment inni í skjalinu.